Færsluflokkur: Bloggar

Skeri niður í óþarfa.

Helst þurfa þumbarnir í WC að komast að því að fokdýr utanríkisstefna er ekki í forgangi á sama tíma og haldið er aftur af allri nýsköpun í atvinnu.

Að halda að hægt sé að skera meira niður í EINA geiranum þar sem skorið hefur verið niður (annarsstaðar hefur nefnilega fjölgað) er bara fullvissun á því sem áður hefur verið haldið fram. Þessir fábjánar vita ekkert um það hvernig reka ætti svo mikið sem egið heimili enda það sem og annað sem þeir þekkja nefnilega verið á ríkisspenanum um nokkra áratuga skeið.

Sendiráðum erlendis mætti fækka í sirka 25 (úr að mig minnir 103) sendiráðsstarfsmönnum hérlendis (um 120) mætti fækka í um 25. Bara með þessu tvennu eru komnir uþb 3,5 milljarðar á ári. Munið að þetta er sama stjórnin og fannst ekki taka því að skera niður ámiðju fjárlagaárinu í málaflokknum sem þeir ólmir vilja skera sem mest nú og kostaði það okkur um milljarð.

Þingmönnum mætti svo fækka í 41, ráðuneytum í 4 og losa alla aðstoðarmenn en á meðan hækka læaun þeirra í 1,5-1,8 millur á mánuði svona til að fá fram kvata til að gera eitthvað annað en að hanga áratugum saman á þingi og setja nýtt íslands, ef ekki heimsmet í lappadrætti.

Næst mætti opna "Núllið" og halda næsta stúkufund WC þar enda verða allir með lygaskitu á næsta ársþingi.


mbl.is Betra að hækka skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenn afbökun eftir undir nafni "þinglegrar meðferðar"

Enn á eftir að afbaka allt sem í þinglaganefnd var samþykkt enda fór nefndin ekki að einu og öllu eftir þeirri forskrift sem Jóhrannar setti fram með einræðisherratilburðum um það leiti sem henni (dýrustu nefnd íslandssögunnar) var komið á.
mbl.is Skýrsla um stjórnlagaráð rædd í einn dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannsóknarnefnd á meðalgreindarvísitölu WC (áður VG)?

Helst mætti halda að WC væru að reyna að reisa aftur rannsóknarréttinn (þar sem allir voru jú sekir, bara mis mikið).

Mest held ég þó að sé þörfin að ath meðal greindarvísitölu WC manna enda virðist hún, af almennum ályktunum flokksþings þeirra, benda til að hún sé svona eins og meðal skónúmer.


mbl.is Vilja rannsóknarnefnd vegna Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að banna bönn?

Banna, hefta og aftur banna.

Einu lausnir WC. Væri ekki best að loknum næstu kosningum að banna WC (æaður VG) og þar með alla þingmenn með greindarvísitölu í skónúmeri sínu?


mbl.is Banni hvalveiðar á Faxaflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjánaleg hugmynd meðan skattabálið og verðbólga loga glatt.

Yfirleitt er Pétur með munninn fyrir neðan nefið, en ekki nú og það sem er þar í staðinn er rassgatið.

Meðan verðbólgan ólgar og óstjórn er á landi (sem og hefur verið um 7-8 ára skeið) er ekki raunhæft að ungt fólk fari að leggja fram fjármuni eða þess þá heldur að baka sér skuldir þegar núverandi Helferðarstjórn er nýbúinn með sýninguna "þjóðin í mínus, ríkið í plús" þar sem fé okkar hinna eldri var brennt á einu bretti af nokkrum spilltum pólitískussum.

Það sem þarf nú er að hreinsa gamla skítinn (16 ára hámark á þingmennsku, afturvirkt eins og vextirnir okkar og verðtrygging) út úr haughúsinu sem eitt var kennt við Alþingi og koma inn nýju blóði.... áður en það verður of seint.


mbl.is Hjálpi ungu fólki að kaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fælingamáttur fangavistar

Ömmi blanki innanríkisráðgerfill er uppfullur af þvaðri nú sem endranær.

Ekki þykir honum nógu gott að setja fanga á stað sem var nógu góður fyrir eldri borgara (Víðines) eða geðsjúka (Arnarholt) heldur vill hann byggja, fyrir peninga sem ekki eru til, risastórt "spa" fyrir fanga á hálendinu.
Það á að vera svo að afbrotum og þá fangelsi fylgi refsing en ekki uppihald á hóteli með öllum aðbúnaði og launuð vinna meðfram.  Þetta á að heyta refsing.
Nú er svo komið að glæpamenn allstaðar af flykkjast til norðurlandanna (annarra en DK) til að sitja af sér hlægilega dóma á stöðum sem eru jafnvel fínni en þeir sem að túristar borga offjár til að vera á og eru reknir undir "SPA". Hér heima er það síðan enn verra. Ekkert pláss svo að ef þú brýtur lög er þér sleppt aftur og svo á að reyna að finna dæmda glæpamenn eftir 3-5 ár eða um það leyti sem að dómar eru að fyrnast.
Þetta er ekki það sem kallast réttarríki.

mbl.is Víðines ekki inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenn afbökun eftir.

Við getum enn slakað á því þetta hrafnaspark á saurblaði (sem áður tilheyrði kommúnistaávarpinu) á eftir að fara í "almenna afbökun" eða eins og það er kallað á Siðblindrahælinu [áður Alþingi] ÞINGLEGA MEÐFERÐ.

Það litla sem í þessum skeini er af viti verður snúið upp í andstæðu sína, teknar nokkrar 180° WC (áður V-G) beygjur og svo helmingurinn ef ekki meira settur beint til endurvinnslu.... N.B. eftir að hafa farið í gegnum pappírstætara.

Það eina sér er ljós punkur í þessu að þetta hlýtur að verða fyrsta mál á dagskrá nýs þings og að samþykktum (með +1 í meirihluta) skeininum mun þing rofið og efnt til kosninga.  Þá munu Helferðarhjúin fara helvítis til og frumvarpið sömu leið þar sem það eina sem áðurnefnd hjúum hefur tekist að hækka og auka og reisa úr rústunum er fylgi Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Ánægð með samhljóm í ráðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir eiga heimilin!

Af hverju eru heimilin hætt að safna skuldum?

Þau eru eign bankanna og því aðeins tölur á blaði.


mbl.is Heimilin eru hætt að safna skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Óskar Guðmundsson

Höfundur

Óskar Guðmundsson
Óskar Guðmundsson
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband